thor
Junior Member
Posts: 56
|
Post by thor on Jan 6, 2009 20:24:44 GMT -5
Tilvist og síðan endanleg útrýming mammútana teygist að sjálfsögðu yfir langt tímabil og er einnig eitthvað misjöfn eftir svæðum. Þeir voru hér um miljónir ára. Það breytir hins vegar ekki því að eitthvað mikið gerðist yfir viss tímabil. En varðandi landatilfærslur olli slíkar færslur eldgosum eins og við nefndum áður og sem síðan orsakaði kalt skeið um stundarsakir eins og þú minntist á eða þar sem dró fyrir sólu. En eftir ákveðið langan tíma dvínuðu eldgosin og askan tók að þekja íssvæðin sem þýddi um leið varmauppbyggingu og/eða hlýnun. Einnig færðist íshellan t.a.m. yfir norðurskautinu suður á svæðið þar sem nú er Evrópa og Norðasta hluta Ameríkusvæðisins vegna viðkomandi tilfærslu. Ég tel það ástæðu þess að mælingar sýna mikla skekkju á ís á miða við pólinn. Sjórinn spilaði þó eitthvað inn í. Ásamt þessu hefur orðið gríðarleg koltvísýrings og gufumyndun í andrúmsloftinu á þesum tíma sem hvoru tveggja veldur gróðurhúsaáhrifum. Þetta þýðir þá hlýnun eftir öllum sólarmerkjum að dæma einhvern tíma í kringum tímabilið fyrir 10000 árum og sem sýnist vera raunin samkvæmt mælingum. Einnig finnast öskulög í ís, sbr. á Grænlandi. Thor
|
|
thor
Junior Member
Posts: 56
|
Post by thor on Jan 7, 2009 14:47:23 GMT -5
Sælir félagar, Var alls ekki meiningin yfirtaka þetta hérna. Er aðeins að íhuga hversu stundum getur verið erfitt að sjá hluti sem tengjast stórum hringrásum og þar sem við erum að leitast við að ná víðari sjóndeildarhring. En varðandi raunverulegar rannsóknir eru auðvitað allir þættir teknir inn í þar sem augun eru höfð opin fyrir öllum atriðum. Ég hef starfað á sviði uppfinninga og skil að oft eru hefðbundnar stefnur lokaðar fyrir nýjum viðmiðunum. Einnig getum við sagt að sum þau mál sem farið hefur verið út í hjá mér hér á spjallborðinu tengist ekki helgum mælingum. Engu að síður virðast stóru hringrásirnar falla undir helgar tölur eða viðmið sem notuð voru við fornar mælingar. Vil nú hæga á mér hér en vildi samt skýra aðeins út mínar hliðar á málunum. Kveðja Þorsteinn
|
|
|
Post by haraldur216 on Jan 7, 2009 17:05:53 GMT -5
Island fullveldi 1944 = 9*216 Niu skref Thors eftir bardagan vid Midgardsorminn !? talandi um helgar toelur og timatal kvedja Hara
|
|
thor
Junior Member
Posts: 56
|
Post by thor on Jan 10, 2009 2:23:49 GMT -5
Eitt sem ég vil kannski benda á þar sem við höfum mikið rætt um töluna 216, að 216x1.6 er 345.6 sem er ansi nálægt hjarta eða miðtón. 1.6 er að vísu ekki alveg gullinsnið eins það hefur verið lagt fram. Ég tel það hins vegar vera í raun 1.6 og það sé skekkja í þeirri tölu sem notuð er. Einnig langar mig til að nefna annað samband sem tengist Venus og tölunni 9 að samkvæmt fornum sögnum eru níu venustímabil í einum hring (5184) sem eru þá 576 ár. Þetta tengist göngu Venusar gangvart jörðu og er unnt að sjá. Einnig vitum við að það liggja mögulega tengsl í formi gullinsniðs á milli Venusar og Jarðar eins og við höfum spjallað um. Í þessu sambandi erum við að enda níunda tímabilið. Hringurinn 5184, eða ein 'sól', er að lokast og þá annað 5184 ára tímavil að taka við. Við höfum í þessu sambandi séð að ef við drögum 5184 frá 2013 fáum við 3171BC. En upphaf Maya hringsins hefur oft verið kenndur við 3114BC. Thor
|
|
|
Post by Pétur Halldósson on Jan 10, 2009 8:57:12 GMT -5
Sælir félagar Takk fyrir stórmerkilegar upplýsingar um hina margblessuðu talnaröð- 27 54 108 216 432 (+) Ég held að það fari ekki milli mála að 216 er sköpunartala veraldar. Tvíeðli alls sem er umbreytir henni í 432.
|
|
thor
Junior Member
Posts: 56
|
Post by thor on Jan 10, 2009 10:56:24 GMT -5
Ef við tökum aftur venus töluna 576 að þá koma fram 584 dagar sem tekur venus og jörð að mynda sameiginlega afstöðu gagnvart sólu. Það eru síðan 5184 ár í heildarhringnum eins og við höfum komið inn á og sem mynda þá töluna 324(0) gagnvart 576 dögum vegna þess að 576 dagar eru 1.6 ár. En hlutfallið í þessu sambandi á milli 584 og 576 er í nokkru samræmi við 365.2425 daga ár og 360 daga ár. Það eru síðan 360 slík 576 daga timabil í 576 árum eins og sjá má og þá 3240 slík tímabil í 5180 árum í heildina. Vildi aðeins benda á þetta Þar sem ég dró fram töluna 576 í tengslum við venus ásamt tölunni 9 og þá viðkomandi 5184 ára hringnum. Talan 576 ár gagnvart venus liggur að öðru leiti ekki ljós fyrir inn í 5184 ára hringnum nema þá ef vera skildi að þessu leiti. M.ö.o. það sést ekki samtvinnuð ganga milli venusar, jarðar og sólar nema að þessu leitinu, þ.e.a.s. tengt tölunni 576 ár svo ég skal ekki segja hvort það sé neinn hljómgrunnur þar. Það eru jú síðan níu 576 ára tímabil í 5184 eins og ég kom inn á en er töluvert langsóttara en ég nenfdi í upphafi. Þannig að 584 eða 576 dagar liggja að því leitinu mun ljósari fyrir en 576 ár. (En 520 (518.4) ár hafa þó einnig verið nefnd í þessum tengslum.) Í þessum sambandi sem við ræðum hér má einnig koma fram að talan 576 er tvisvar sinnum 288 eins og við vitum. Vil ekki flækja þetta meira. Thor
|
|
thor
Junior Member
Posts: 56
|
Post by thor on Jan 11, 2009 22:10:34 GMT -5
Eins og ég ímynda mér slíkt að þá taka helgar mælingar meðal annars til hringrása eins og við höfum komið inn á áður. Og þá stærri hringrása eins og bylgna sem rísa og falla og rísa síðan aftur. Það merkilegasta við þetta að slíkar mælingar falla saman í eina mynd að mínu mati. Mayarnir t.a.m. vissu um þessar hringrásir eða bylgjur og einnig að einhverju leiti hvað þær gætu táknað og/eða hvaða breytingar þær gætu haft í för með sér eða orsakað. Spurningin er, gerum við slíkt hið sama? Það sem einnig kemur fram í þessu tilliti er samspil pláneta eins og t.d. venusar og jarðar. En ein bylgjan meðal Mayana voru/eru 5184 ár eins og við höfum rætt um. En 25920 felur þá í sér eða innheldur svokallað Long Count meðal Maya og hefur þá með að gera fimm 5184 ára bylgjur/sólartímabil. Hvert sólartímabil hefur sína eiginleika en samt sem áður er eins og masculine og feminine skiptist á. Við erum inn í masculine núna. Réttara sagt grófari hlið masculine eða 2592 ára hringnum (sjá síðar). En það sem við kannski enn frekar leggjum upp með til að byrja með í þessu sambandi er talan 256 eða 259.2. Þessi tala táknar meðal annars JÖRÐ og fóstrar tengingsformið. Við getum kannski líka litið á 259.2 eins og smágerða mynd af 25920(0) árum. En eins og við vitum er talan 260 (259.2) innifalin í Tzolkin meðal Mayana. Fellum þetta síðan inn í stærri myndina. Það kemur í ljós að ef við reiknum með 360 daga ári í stað 365.2425 að þá fela 5184 ár í sér 7200 slík tímabil, þ.e. 259.2 daga tímabil. En ásamt því að 2592 ár eru hringur í sjálfum sér að þá höfðar þetta einnig að mínu mati til að 3600 eða 2592 ára eða 36 gráðna úr stærri hringum, þ.e. 25920 árum, og 7200 eða 5184 þá 72 gráður úr sama hring, vegna þess að innan 25920 ára eru 36000 slík 259.2 daga tímabil og þar sem 25920 ár höfða þá til einnar stórrar hringrásar eða einnar pólveltu. Mig langar til að nefna að núna á 5184 ára sólarferli (masculine) að vera að ljúka og annað 5184 ára að byrja (feminine). En alltaf þegar þetta gerist virðast verða allt aðrar viðmiðanir hafðar í frammi í heildina séð. Það koma ný gildi. Maðurinn fer meira að mynda tengsl við náttúruna og leita inn á við. Það má segja í þessu sambandi að vissir stofnar séu meir með feminine hljómgrunn eins og t.d. indíánar. Svipað má þó segja um hugmyndafæði annarra menningarheima. Menningarheimar haf akomið og farið og sem eru gjörólíkir því sem nú er. Í þessu sambandi langar mig til að nefna að eitt 5184 ára tímabil, hvort sem um er að ræða feminine eða masuline, felur bæði bæði yin og yang. Þ.e. hafa tvær birtingar. Önnur eða sú fyrri hefur meir að gera með tengsl við móður náttúru á meðan sú síðari verður efnislegri. Hvor um sig, eins og t.a.m. í þessu tilfelli 2592(0), er þó hringur í þessari merkingu eins og við höfum komið inn á. Það sem mig langar til að leggja fram að auki er aðeins meir um töluna 576 (584) í þessu sambandi og sem tengist venus. En ferli venusar og jarðar eru samtvinnaðar og sem veldur oft straumhvörfum í sögu okkar. En styðsta eða 576 daga tímabil morgun og kvöld tímagöngu venusar þýðir 360 slík tímabil í 576 árum og 3240 slík tímabil í 5184 árum eða níu 576 ára tímabil í 5184 árum eins og við höfum áður komið inn á. Ég held að það sé þetta bylgjusamband og tímatal sem Mayarnir meðal annrra voru að reyna að benda okkur á. Hvort þeir höfðu erinid sem erfið skal ég ekki segja? Einnig langar mig að taka styttri tímabilin í sambandi við hringrásir, og/eða hinar smærri hringrásir, og sem fela þá í sér 259.2 og 518.4 ár og 2592 og 5184 ár. En 259.2 verður þá 360 og 2592 verður 3600. Það sem er kannski einkennilegt við þetta að 2592 og/eða 5184 felur í sér biblíutíma á meðan 259.2 ár taka til okkar tímatals og þá meðal annars bandaríkin. Fer nánar út í það síðar ef einhver hjómgrunnur er fyrir þessum löngu skrifum mínum nú? Og að endingu langar mig að ítreka að tölurnar 216 og 432 eru að sjálfsögðu fléttaðar in í þesssa mynd og gefa tilefni til umhugsunar um að fylgja bylgjunni hverju sinni. Því sem mig langar þó til að bæta við og þá eins og við öll vitum að í tengslum við samfléttun á göngu jarðar og venusar í þessu sambandi getur venus bæði verið kvöldstjarnan og morgunstjarnan. Það eru meðal annars þeir þættir sem við erum að ræða um hér. Þetta verður nú ekki lengra. Er orðið alveg nógu langt. Vona að þetta sem ég hef sagt 'maki' einhvern 'sense' eins og maður mundi segja á lélegri íslensku? Ég skal ekki dæma um það. Kveðja Thor
|
|
thor
Junior Member
Posts: 56
|
Post by thor on Jan 11, 2009 22:25:46 GMT -5
Það koma líklega fram einhverjar endurtekningar í þessu sem ég rita hér á undan. Skrifaði þetta er ég kom heim úr vinnu í nótt. Vona þó að þetta skiljist þó það sé kannski ekki alveg rétt borið fram? Thor
|
|
thor
Junior Member
Posts: 56
|
Post by thor on Jan 13, 2009 7:19:38 GMT -5
Eins og við sjáum endurtekur talan 216 sig innan 2592(0) eða 5184(0) hringsins og kemur fram 12 eða 24 sinnum. Þannig að því leiti eru þessar tvær tölur samfléttaðar. Svo sem ekkert nýtt þar en kemur engu að síður fram hvernig þessar tölur liggja saman og þar sem talan 216 verður að lokum 432 í lok tímabils að mínu mati. Mig langar í þessu sambandi til að ígrunda hvað lok 5184 ára hrings þýðir fyrir okkur. Og ekki bara það heldur einnig 25920 ára hringsins sem virðist líka að enda núna og annar að byrja? 5184 getur þýtt endurkomu sólar númer tvö t.d. Það er þó einungis tilgáta. Þarna virðast þrjú ferli samfléttuð. 3600 ára tímabil, 5184 ára tímabil, og síðan 12960 ára tímabil. Eitthvað umvending gerist síðan á 103680 ára fresti sem eru átta 12960 ára tímabil. Það merkilega við það er að einnig 103680 ára hring virðist vera að ljúka og þá annar að byrja. Í því kerfi sem við höfum verið í er spírallinn á niðurleið í efnislegum skilningi en snýr síðan upp á við aftur. Ég held ekki að þeir sem sendu okkur öll þessi skilaboð hafi bara verið að leika sér eða koma þeim til skila af litlu tilefni. Við skulum sjá hvað setur. Ég vil taka fram að þetta er allt, þ.e. hringrásirnar, ígrundað út frá línulegum veruleika, en í raun má segja að ekkert sé þó línulegt í þeim skilningi. Vildi með þessari viðbót hér að ofan aðeins 'klára' að reyna að skýra út hugsun mína á varðandi þetta. Vona að það sé í lagi þar sem ég vil alls ekki einoka spjallborðið? En þessi málefni hafa verið mér, ásamt mörgum fleirum að sjálfsögðu, mikið áhugamál. Thor
|
|
|
Post by Pétur Halldósson on Jan 13, 2009 20:36:58 GMT -5
Thor, takk fyrir þessar upplýsingar. Tölvísin er svo stór hluti þessa pælinga að hún þarf sitt rými. Það er bara svoleiðis. Hafðu ekki áhyggjur af því. Formin væru ekki til án hennar, hún er mjög spennandi. Petur
|
|
thor
Junior Member
Posts: 56
|
Post by thor on Jan 14, 2009 9:34:33 GMT -5
Takk fyrir það Pétur. Þetta er alveg rétt. Til að gera þessu einhver betri skil þyrfti alla vega eina bók. Var í þeim hugleiðingum á sínum tíma. Í raun skrifaði ég bók en hún kom aldrei út Það eru mjög margir þættir sem væri áhugavert að skapa frekari umræðu um og fara betur ofan í. Thor
|
|
thor
Junior Member
Posts: 56
|
Post by thor on Jan 17, 2009 10:13:12 GMT -5
Það er fleira merkilegt sem kemur fram við tölurnar 432 eða 216. Í því sambandi er t.d. rætt um þrjú megin tímaskeið og þar sem við erum á öðru tímaskeiðinu og sem gæti í raun verið táknað með tölunni 432 (216). Í þessu tilliti erum við einnig sögð vera inn á kali yuga og sem er sagt spanna 432000 ár og þar sem heildartímaskeiðið innan þessa tiltekna hrings er þá 4320000 ár eða tíu sinnum lengra. En tímaskeiðin eru alltaf reiknuð 4-3-2-1 eða í heildina 10 með það minnsta eða 1/10 síðast. Í ritum t.a.m. frá Helen Blavatsky og einnig frá öðrum aðilum er talað um að kali yuga hafi byrjað 3102 fyrir Krist. Þetta er þá í nokkru samræmi við tímatal Mayana þar sem þó er gefið upp ártalið í kringum 3114 FK. Þó alls ekki langt frá eða nánast það sama. En ef við förum öðruvísi að og gefum okkur hins vegar að 432000 þýði í raun allt aðrar einingar en hefðbundið ár þannig að um sé t.d. að ræða sveiflur í náttúrunni sem taka í kringum 4.32 daga eða 10368klst að þá kemur að sjálfsögðu allt önnur útkoma. En í því sambandi fengjum við 5184 ár en ekki 432000. Þannig að á þeim forsendum tæki kali yuga 5184 ár og væri þá að enda um það bil á okkar tímum eða sirka núna (2012-2013?). Einnig þýðir samkvæmt sömu formúlu að einn kynstofn (root race) sem sagður er spanna 8640000 ár samkvæmt fornu tímatali að hans tæimabil yrði þá 103680 ár, þ.e. á okkar tímatali. Þetta gæti þá líka verið í samræmi við segulsvið jarðar sem virðist breytast og jafnvel umpólast á 103680 fresti og sem þýddi aftur að öllum líkindum töluverðar breytingar á lífríki og/eða náttúrunni sem heild. M.ö.o. homo sapiens sapines (fimmti kynstofninn) eins og hann er nú gæti með þessum hætti hafa komið fram fyrir um hundrað þúsund árum. Við getum þá spurt okkur hvort það verður 'homo sapiens sapiens sapiens' á þessum tímamótum og/eða sjötti kynstofninn? Það sem mig langar til að taka fram að það koma að sjálfsögðu mikið lengri tímaskeið fram í þessu og þar sem hringrásirnar falla má segja inn í hvor aðra ef svo má að orði komast. Við gætum þannig verið að ræða um 43200000 ár eða 518400 ár á okkar mælikvarða, þ.e. fimm stofna eða fimm 103680 ára tímabil. Við eigum þá tvisvar sinnum 103680 ára tímabil eftir eða tvo stofna, þann sjötta og sjöunda, og þar sem sá sjötti er þá að byrja einhvern tíma núna eins og við nefndum hér á undan. Ég vil taka það fram að þetta er allt línulegt og einnig byggt talsvert á tilgátum af minni hálfu. Engu að síður getur þetta verið dálítið athyglisvert og umhugsunarefni og kannski vert þess að leiða hugann betur að því? Thor
|
|
thor
Junior Member
Posts: 56
|
Post by thor on Jan 17, 2009 23:07:00 GMT -5
Mig langar kannski til að bæta við að það eru sextíu 4.32 daga tímabil í 259.2 daga tímaseiði. Það fellur þannig inn í tímatal Mayana. Ef við förum yfir í sekúndur og jafnvel ljóshraða verða þessar tölur einnig sýnilegar. Ég vil líka taka fram að ég held að 103680 skiptist í tvo póla. Annar, eða þessi seinni, tekur þá til 51840 ára (eins og sá fyrri) og þar sem síðasti hluti þessa seinna tímaskeiðs, eða 1/10, er þá kali yuga og sem eru þá 5184ár. Thor
|
|
|
Post by einargunnar on Jan 22, 2009 6:52:54 GMT -5
Hæ
ferðalag Dana!
Mjög skemmtilegar og fróðlegar umræður um allar þessar tölur. Stærð sólkerfis, hlutföll þar og vegalengdir eru rannsóknarefni út af fyrir sig. Einhver ætti að taka sig til og gera einhverja rannsókn þar. Neðanvert útbjó ég fyrir vinkonu mína erlendis sem hefur áhuga á þessu máli. Læt það til ykkar með von um að einhver taki upp þráðinn og rannsaki frekar.
Einar
) The average distance between the sun and the earth is around 108 times (107.47) the diameter of the sun. The deviation from the number 108 is much less than 1%. The diameter of the circle the earth travels around the sun is therefore 108 x 2 = 216 times the diameter of the sun.
2) The diameter of the sun is close to 108 times (109.24) the diameter of the earth. The deviation from the number 108 is only around 1%.
3) The average diameter of the reference spheroid (the earth) is about 12,742 km. The rotation of the Earth creates the equatorial bulge so that the diameter at the equator is 43 km larger than the pole to pole diameter. The difference is equal to a proportion of approximately 1: 296. This is, as far as I remember, the number mentioned by Professor Livio Catullo Stecchini (see below). However, this number changes slightly when using a different reference spheroid.
4) According to Stecchini the Cheops pyramid in Egypt is a replica of the northern hemisphere of the earth in the scale of 1: 43200. The proportion of 1: 296 is integrated in the design. One side of the pyramid is longer than the other sides by this proportion.
The basic idea of the Great Pyramid was that it should be a representation of the northern hemisphere, a hemisphere projected on flat surfaces, as is done in mapmaking. This was the principle according to which was built the ziggurat of Babylon, the biblical Tower of Babel, and according to which were built the earlier pyramids. The Great Pyramid was a projection on four triangular surfaces. The apex represented the pole and the perimeter represented the equator. This is the reason why the perimeter is in relation 2π with the height. The Great Pyramid represents the northern hemisphere in a scale 1:43,200; this scale was chosen because there are 86,400 seconds in 24 hours.1 (the above is from Stecchini).
5) The Icelandic mesocosmoses in the Viking Age were reflecting the macrocosmos and were 216000 Roman feet in diameter. Important settlements and cult places were arranged within these circles. In Scandinavia are found mesocosmoses of 432000 feet in diameter and 468000 feet in diameter (432000 + 36000). I have found one possible mesocosmos there of 296000 feet in diameter. For thousands of years various civilizations used feet as units of measurement.
6)The Hindu Ages
The Icelandic numbers of the universe, 216 and 432, had a counterpart in India. The number 216 seems to have been a standard of Hindu time and the 432,000 years of the Kaliyuga show a correspondence with Iceland which is clear and concise (the number of zeros does not change the essentiality of the number).2 The most important cycle of time in Hindu mythology is called Kalpa, which is only one day in the life of Brahma but is equivalent to 4,320 million years on earth.3 “The Kalpa is divided into one thousand Great Ages (Mahayugas), and each of these is further divided into four ages or Yugas, called Krita, Treta, Dwapara, and Kali.”4 The Kritayuga is a golden age lasting 1,728,000 years (4 × 432,000 years), the Tretayuga lasts for 1,296,000 years (3 × 432,000 years), the Dwaparayuga lasts for 864,000 years (2 × 432,000 years), and the Kaliyuga (the present age, which is the age of degeneration) lasts for 432,000 years.5
From an authoritative work on Indian tantra yoga I learn that, according to the Dhyānabindu and other related Upanishads, all living beings inhale and exhale 21,600 times a day,31 this being in evidence of their spiritual as well as physical identity in the nature of the universal māyā-śakti-devī, the Great Goddess who in India is celebrated in a litany of her 108 names.6 (a text from Campbell). Therefore it seems to be obvious that the sacred geometric progression 27–54–108–216–432–864–1728 was of major importance in India.
7) The average distance between the earth and the moon is 384,403 km which is 1,298,658,784 Roman feet. As mentioned above, the Tretayuga lasts for 1,296,000 years (3 × 432,000 years). 432 x 3 is 1296. 1,298,658,784 can be reduced to 1298,66. The deviation from the number 1296 is only about 0.2%.
8) The diameter of the earth is 12,742 km which is 43,047,297 feet. The deviation from the 43,200,000 feet (we have here the number 432 as the number of zeros does not change the essentiality of the number) is only around 0.4%.
|
|
thor
Junior Member
Posts: 56
|
Post by thor on Jan 23, 2009 9:08:35 GMT -5
Einar Gunnar, þetta er afar fróðlegt eins og t.d. með töluna 21.600 í tengslum við innöndun og útöndun. Þetta fer þá mjög nærri ummáli jarðar í sjómílum. Við eitt öndunarferli ferðumst við eina sjómílu, og við 21.600 slíkar innandanir/útandanir er liðinn einn dagur eða sólarhringur eins og kom fram hjá þér. Thor
|
|