|
Post by haraldur216 on Jan 4, 2009 16:35:14 GMT -5
Spennandi athuganir hja ykkur a helgum toelum
Her kemur sma innlegg vardandi 216
Mjoeg mikilvaeg tala
I opinberunarbokinni visad til hennar sem 666 sem er tala mannsins og skepnunar.
Kemur ur talnaroed grisku launhelganna sem tolur orkustodvanna 111 faetur 222 hne 333 grunnstoed 444 kynorka 555 magi 666 hjarta 777 hals 888 munnur ordid 999 enni 1000. thusundblada orkustodin i toppunkti hoefudsins
Thetta eru i raun tiundinn helga hans pythagorasar i teningsformi. Jesu sem er ordid er audvitad 888 og sigurvegarinn kristur 1000.
Her er 666 tala hjartaastodvarinnar nefnd her ad ofan. Hun er fulltrui kaerleikans eda enginn kaerleikur / eigingirnin sem er bestian.
I sumum domkirkjum i Englandi er herbergi i turnininum fyrir ofan altarid i einingunum 6*6*6 og er thath biskupsherbergid og tha biskupinn fulltrui heilags anda 1296.
6 = 2*3 ~ 2+3 =5 tveir og thrir eru modir og fadir og talan sem ur verdur er hin fullkomna skopun.
Their sem thekka gnostik that er thetta sennilega barbelo foreldrar sophiu modur Jachve foedur hinns ofullkomna heims thar sem myrkur og ljos maetast
6 skref til fullkomnunar 6*6 er floetur eda stadur fullkomnunar 6*6*6 er hus fullkomleikans 6*6*6*6 er andi hins fullkomna huss
Hja pythagorasis decad skoepunar 2*3
1
2 3
4 6 9
8 12 18 27 16 24 36 54 81
32 48 72 108 162 243
64 96 14 216 324 486 729
og svo framvegis
Svo ma svipad gera ur grunn decadinum
1
2 3
4 5 6
7 8 9 10
216
432 648
864 1080 1296
1512 1728 1944 2160
og svo framvegis
Svo sem adur sagt er i hring :
24 timar * 60 minutur * 60 sekundur = 86400 sekundur aust vestur
360 gradur *60 minutur * 60 sedkundur = 1296000 sekundur nord sudur
Til gamans ma baeta vid ad a indlandi er talan 216 notud sem grunn eining 216*216 i floet til ad draga a mandoelu.
Tha er talan 108 notud thegar helgar thulur eru thuldar.
Svo sem betur thekkt er 432000 vaettir i hersveit modurinnar a mot myrkvahoefdinga heimsins.
I adal moedur toentrunni eru 216 hoefudvaettir idkunarinnar i sri chakra eda sri yantra .
Svo er stora spurningin reynir landnama ad nefna 432 landnamsmenn og adra hoefdingja. Tha er hver 1000 eda sigurvegari.
Nog i bili.
Kvedja
|
|
|
Post by Pétur Halldósson on Jan 4, 2009 16:47:14 GMT -5
Sælir félagar Takk fyrir þessar merkilegu upplýsingar um töluna 216 sem er bundin lífinu sjálfu á margvíslegan máta t.d.: Fjarlægð jarðar frá sól er að meðaltali 108 þvermál sólar, þvermál sporbaugs jarðar er aðmeðaltali 216 sólir. Afstæðiskenningin varð til í hugarheimi Einsteins í byrjun síðustu aldar. Þá var talið að bergmál mikla hvells ómaði í tómi geymsins í sveiflutíðninni 216 líkt og tónninn A í tónfræðinni. Einstein taldi að þar úti ferðast ljósið á hraðanum 432 x 432 mílum á sek.* Það glittir í einstaklega f*gra formfræði -og tónlist þegar tölvísi “sköpunar” er skoðuð. Þá blasa við tölur sem ég vona að lesendur fælist ekki við því tölur eru formum líkt og nótur eru tónlist, allt virðist vera háð formfræði. Taktur, hlutföll og fjarlægðir í sólkerfi okkar gera það að verkum að jörðin hefur þá efnissamsetningu, þyngd og meðalhita sem er undirstaða lífsins eins og við þekkjum það. Á þessum takti og þessum hlutföllum byggjum við mannfólk mælieiningar okkar á tíma og rými. Ályktanir sem draga má af efninu sem birtist m.a. í bók minni, bókum Einars Pálssonar og á þessum spjallvef leiða til eftirfarandi tilgátu: Mæling heimsmynda, eins og Einar Pálsson uppgötvaði á Rangárvöllum, sameinaði hugmynd sköpunar stærð jarðar, fjarlægð hennar frá sól og vegalengd sem heilbrigður maður getur hugmyndafræðilega gengið á 12 klst. Í miðju heimsmyndarinnar var heilagt tákn Jarðarinnar. Mæling sem sameinaði stærð Jarðar stærð manns.
*Jafna Einsteins um efni og orku gerir ráð fyrir að ljós ferðist á hraðanum 186.291 mílur á sekúndu í tómi geymsins. Ef hraðinn væri hinnsvegar aukin um 0,179% væri hann 186.624 mílur á sek. Rót þeirrar tölu er 432. Munurinn er það lítill að geta flokkast innan mismunandi afbrigða í útreikningium afstæðiskenningarinnar. Petur
|
|
thor
Junior Member
Posts: 56
|
Post by thor on Jan 4, 2009 23:39:42 GMT -5
Frábært Það virðist vera stuðst við sjómílu og einnig í einstaka tilfellum líka við enska mílu í fornum mælingum. Þó töluvert við sjómílu eftir því sem ég best fæ séð og sem tengist þá t.d. stærðarhlutföllum jarðar. Ef við tökum sjómílu (nautical mile) að þá er eins og áður var nefnt ummál jarðar 21600 sjómílur. Í því sambandi er radíus hrings á Rangárvöllum nálægt 36 sjómílum en nær því þó ekki alveg ef allar einingar eru réttar. Er rétt í kringum 35.55 sjómílur. Þ.e. ef um er að ræða 216000 fet í radíus Rangár-hrings. Ef við höldum áfram að þá má segja í tengslum við þessar tölur að meðal fjarlægð á milli Jarðar og Venusar sé einhvers staðar í kringum 21600000 sjómílur. Og frá Venus til sólar 57600000 sjómílur. En allt gæti þetta þannig tengst tónum eða hlutföllum tóna. Ég sé að talan 432 tengist ljósi eins og við höfum áður komið inn á. Hins vegar er hún reiknuð í gegnum enska mílu ef hún er margfölduð þannig. Þarna er þá hálftóns mismunur eða í kringum það. Ef við tengjum þetta hins vegar áfram ummáli jarðar og tökum töluna 43200 í stað 21600, og síðan tengsl ljóshraða á þeim grunni, fáum við töluna 1.44 (144). En þarna liggja tengslin að mínu mati, eða tengsl stærðar jarðar og ljóshraða. Þarna kemur einnig inn tíðnisvið heilabylgna. Þ.e. ummál jarðar og ljóshraði. Ef við höldum áfram með sjómílur að þá eru samkvæmt þessu 60 sjómílur í einni gráðu. Ein sjómíla er að mínu mati þannig í kringum 6000 fet. M.ö.o. talan 6 endurtekin. Síðan fáum við út úr feti tólf tommur eins og við vitum (eða tisvar 6). Hins vegar virðist í nútíma-formi vera einhver skekkja í einingu fets þar sem við fáum t.a.m. töluna 35.55 í stað 36 og síðan 6076 fet en ekki 6000 eins og við sjáum hér fyrir ofan. Eða sama skekkjuhlutfall í báðum tilfellum og þar sem fetið yrði þá til leiðréttingar 0.30866667 metrar en ekki 0.3048. Ef hins vegar mælingar eru dregnar út frá umræddum einingum beint að þá stenst þessi samanburður auðvitað að sjálfsögðu ekki og/eða þessar niðurstöður. Einhverjar aðrar skýringar liggja þá að baki. Einnig varðandi Venus og Jörð t.d. að þá virðist gullinsnið geta verið tengt inn í myndina eins og við höfum rætt um áður. 365.2425/224.7=1.625467. Eða frekar 360/224.7=1.602136. En ég tel rétt og/eða fornt ár vera 360 daga en ekki 365.2425 eins og nú. Kínverjar hið forna miðuðu alltaf við 360 daga en ekki 365.2425. Ég tel það dagatal vera upprunnið frá tímum Atlantis áður en allt féll í tíðni eða um það bil fyrir 12-13000 árum. Ég held að það tengist eitthvað segulsviði og þá ljósi eða hvernig við upplifum veruleikann þá og nú. En í tengslum við gullinsnið og samtvinnaða göngu Venusar og Jarðar að þá er ár Venusar eða þann tíma sem tekur Venus að fara í kringum sólu um 224.7 dagar. Ég tel einnig í þessu sambandi rétt gullinsnið vera nær 1.6 í stað 1.6180339. Kannski ekki? Og í þessu sambandi, og þá tengt tölunni 1.6, er slíkt kannski einnig skýringin á vissum atriðum og/eða hlutföllum í einingum séð sem við verðum vör við í útreikningum? Svo sem varðandi í vissum tengslum við ljós eða ljóshraða og öðrum atriðum. Í öllu þessu að þá er eitthvað regluverk eða gangverk í tilverunni sem við nútímamenn erum rétt að byrja að skyggnast inn í og/eða enduruppgötva. Thor
|
|
thor
Junior Member
Posts: 56
|
Post by thor on Jan 5, 2009 8:54:18 GMT -5
Það er ýmisleg merkilegt sem kemur fram varðandi töluna 216 hérna. Hafði farið enn betur yfir það sem þið höfðuð skrifað. T.a.m. það sem kom frá þér Pétur og einnig frá Haraldi sem var hvorutveggja mjög merkilegt að öllum öðrum ólöstuðum auðvitað. Ég lít svo á að þegar tengingur eða formin fullkomnast opnast allur hringurinn og talan verður 432(000) í stað 216(000) eða talan 216 upphafin. Þá verður dögun, sbr. t.a.m. Stöng hinu megin miðju. Thor
|
|
thor
Junior Member
Posts: 56
|
Post by thor on Jan 5, 2009 9:33:36 GMT -5
Það sem átti fremur að vera var (þekktur) ljóshraði 162000 (300000) sjómílur deilt með 21600 (40000) eða sama sem tíðnin 7.5rið/sek (gætum mögulega útfært 3.75hz ef við miðum við 432000). Þetta varðandi 7.5 rið er ekkert nýtt framlag þó. Aðeins að binda það inn í pakkann sem við höfum verið að færa upp. 432/3=1.44 var einungis slegið fram. Thor
|
|
|
Post by haraldur216 on Jan 5, 2009 14:23:09 GMT -5
Takk fyir goda punkta um 216 i hljomfalli og soeng stjarnanna.
Vardandi timatal 360 og 365 daga.
Egyptar til forna hoefdu 360 daga i arinu en ad auki 5 daga "a midju" fyrir godin Osiris Isis Nephtys Set og Horus (Elementin fimm)
Their hofdu svo Sothic Cycle sem var eitt hlaupar hver 4*365ar sem gerdi 1461 ar. Tha var sagt ad phoenixinn risi upp ur eldinum. Stjarnan Sophdet-Sirius reis tha upp a undan solu ad vori fyrir flod Nilar.
Hja theim faerdis thvi helgisida arid i gegnum allar arstidarnar a 1461 egypskum 365 daga arum. Vid erum nuna eitthvad naerri arinu 1050 og eigum um 410 ar i neasta ris foenixins.
Fyrir baendur hoefdu their svo arstida dagatal. sennilega tengt risi laegstu sol i nordaustri (og tha fimm solstodu doegum).
Ef eg man rett tha var thath Caesar sem krafist thess ad eygpytar gaefu upp Sothis dagatalid og teakju upp sitt retta solar-ars-dagatal med hlaup doegum og var thath undanfari falli hins egypska truarheims. Tha for stjarnvisin nordur og nidur thar sem upp af theim tima var hun notud til ad skoda framgang timans.
kvedja Haraldur
|
|
thor
Junior Member
Posts: 56
|
Post by thor on Jan 5, 2009 18:14:16 GMT -5
Mjög mjög áhugavert. Þegar þú nefndir Sothic Cycle fór ég að spá í þetta og þá líka mögulega töluna 144(0) í þeim tengslum en ekki 1461. Líka þar sem 144 er 1/3 af 432 eins og við höfum farið inn á. En ef fimm aukadagar eru reiknaðir og tekinn mismunur á árafjölda miða við það, eða að þetta sé 'skekkja' sökum einhverra þátta, verður niðurstaðan að því er mér sýnist 1440 ár í stað 1461. Einnig er einn Maya cycle eða 5184 ár sama sem 3.6x1440. Eitthvað segir mér í þessu tilliti að sú mikla þekking og þá mjög svo ólíku kringumstæður (360dagar) sem voru fyrir um 12-13000 eða fyrir þann tíma hafi þá flust eða flúið til Kína og einnig Egyptalands ásamt til fleiri staða þegar menn forðuðu sér vegna hinna miklu breytinga sem þá áttu sér stað. En það má segja að slíkt séu aðeins getgátur af minni hálfu. Hins vegar hef ég t.d. séð á vissum kortum að miklar breytingar hafi átt sér stað á yfirborði jarðar á þessum tíma og er þetta þá líka í samræmi við lestra eða spádóma Edgar Cayce. Einnig dóu mammútar og ýmsar aðrar dýrategundir út á þessum tíma af þeim orsökum ásamt því að heitara tímabil byrjaði að festa rætur á jörðinni. Ísöld lauk. Ég veit að ég er að öllum líkindum kominn langt langt út fyrir efnið? Má vera? Ég játa það. Það var þó ekki ætlunin? Hins vegar langar mig af fremsta megni að tengja það sem við erum að ræða betur og betur við það sem við sjáum í kringum okkur, á svipaðan hátt og við spáum í mælingar og annað sem við sjáum í umhverfi okkar eins og t.d. á Rangárvöllum og mörgum fleiri stöðum og þar sem við getum að endingu jafnvel farið út í og út fyrir sólkerfið og einnig inn í efnasambönd mannslíkamans. Það dýpkar litrófið og gerir þetta allt meira spennandi. Kveðja Thor
|
|
thor
Junior Member
Posts: 56
|
Post by thor on Jan 5, 2009 18:20:59 GMT -5
(kannski réttara orðalag) "Eitthvað segir mér að þessi þekking og/eða minning um aðrar kringumstæður hafi borist til Kína og annarra staða er menn flúðu frá þeim svæðum sem illa urðu úti á þessum tíma." Þar á ég t.d. við Atlantis og sem sumir segja að sé eingöngu goðsögn.
|
|
|
Post by haraldur216 on Jan 6, 2009 13:42:33 GMT -5
Vardandi fyrir 13000 arum Menn hafa yfirleitt haldid ad um hafi verid ad raeda haeg frekari bradnun a isnum og haekkandi sjavarmal. Nyjar rannsoknir i nordurameriku sina smaa demanta i jardlagi thar fra thessum tima sem bendir til gifurlegrar sprengingar eda lofsteins. Thath gaeti tha utskyrt miklar menningarbreytingar i heiminum a thessum tima og ad i nordurameriku hurfu oell stor spendyr a thessum tima. Adur var moennum kennt um thath. Kvedja Hara
|
|
thor
Junior Member
Posts: 56
|
Post by thor on Jan 6, 2009 17:17:10 GMT -5
Eftir sumum neðansjávarsýnum að dæma sem tekin hafa verið út af austurströnd bandaríkjanna hafa þau verið ofansjávar fyrir 12 til 13000 árum (12960). Einnig virðast sumar leyfar stórra útdauðra dýra sem lentu í hamförum vera frá svipuðum tíma. Gæti verið að tímaskeið (360/365.2425) og massamiðja jarðar (einhverjar breytingar á segulsviði?) hafi þá breyst á þessum sama tíma? 12960 er hálft 25920 ára tímabilið. Pýramídinn virðist vera í landmassamiðju jarðar, þ.e. eins og hún er nú. Sfinxinn getur annars vegar táknað 'lægra' (líkama) og æðra eðlið (sál/anda) eða 216 og 432, og þar sem hann getur einnig táknað ljón og vatnsbera. Ljónsmerki byrjaði fyrir 10800 árum og endaði fyrir 12960 árum og vatnsberi er að byrja núna og inniheldur að sjálfsögðu töluna 2160.
|
|
|
Post by haraldur216 on Jan 6, 2009 17:39:50 GMT -5
ok Samkvæmt útreikningum sem ég lét Þorstein Sæmundsson stjarnfræðing gera fyrir mig þá fór vorpunktur inní vatsnbera haustid 1987.
|
|
|
Post by haraldur216 on Jan 6, 2009 17:40:50 GMT -5
Small diamonds distributed by North America suggest a series of comets struck the Earth does about 13,000 years, causing a cold period in the planet that took to mamuts and other creatures to the extinction, according to the scientists.
The diamonds give faith of an event that would have surpassed to the Biblical stories, a series of explosions shining in the atmosphere equivalent to thousand of atomic bombs, said to the investigators Friday. The nanodiamantes calls are created in conditions of high temperatures and high pressure generated by impacts cosmic, similar to an explosion on Tunguska, in Siberia, that demolished trees in kilometers to the round one in 1908.
|
|
|
Post by haraldur216 on Jan 6, 2009 17:41:59 GMT -5
Doug Kennett of the University of Oregon and its colleagues found small diamonds in zones that go from Arizona to Carolina of the South and to Alberta and Manitoba in Canada. They are buried at a level that has been corresponding with a time for 12,900 years, in the beginning of the Recent Dryas - a cold period of about 1,300 years at the end of the Pleistocene during which mamuts, the teeth of saber, the camels and the sluggish giants of North America were extinguished.
|
|
thor
Junior Member
Posts: 56
|
Post by thor on Jan 6, 2009 18:53:41 GMT -5
Þetta var afar fróðlegt. Hafði ekki heyrt um þetta. (Það sem átti að sjálfsögðu að vera er að ljónsmerki byrjaði fyrir 12960 árum og endaði fyrir 10800 árum). Vatnsberi og ljónsmerki eru tveir pólar og tvö af fjórum andlitum guðs. En nautið er á dögum 'endurreisnar' pýramídana og endaði fyrir 4320 árum. Og síðan Sporðdrekinn sem endaði fyrir 17280 eða er nær byrjun hrings. Það virðast ávallt töluverðar breytingar eiga sér stað í kringum þessi tímaskeið eða það sem er kallað fjögur andlit guðs. Varðandi 1987 er það akkúrat í samræmi við upplýsingar frá öðrum stöðum sem ég hef heyrt um. Einnig eru árin 1987-2013 tuttugu og sjö að báðum árunum meðtöldum. En Nostradamus talar um töluna 27. Þessar útlystingar hjá mér eru kannski ekki vísindalegar en engu að síður er þetta allt umhugsunarefni. Það er í þessu sambandi heldur ekki ætlunin að setja fókusinn á eitthvað sem veldur óróa eða vera með einhverjar dómsdagsspár vegna þess að slíkt passar ekki inn í svona umræðu. Vil aðeins reyna að sjá hlutina eins og þeir eru hins vegar. Kannski eru margar birtingar fyrir hvern og einn. En getur mögulega verið í þessu sambandi að hin ‘önnur sól’ svokallaða (the second sun) og tólfta plánetan spili inn í slíkar breytingar sem hér um ræðir og valdi þessu sem við höfum verið að ræða um? En þær (þ.e. pláneta/ur og sól) er sagðar fara í gegnum hið svokallaða Oort Cloud sem er halastjörnubelti sem er töluvert langt frá jörðu og draga þannig með sér halastjörnur á leiðinni í gegn. En með ákveðnu millibili er ferlið þríþætt - bylgja, sól (tólfta plánetan), og halastjörnur. 3600ára hringurinn er aðeins ein birtingininn í þessu. Ég skal ekki segja hvort neitt af þessu er rétt hjá mér? Ekki er það kannski heldur vísindalegt. Alla vega ekki í ákveðinni merkingu. En einnig í þessu sambandi langar mig að benda á þar sem við höfðum rætt um Fuglinn Fönix að hann stundum einnig tengdur við töluna 1296(0). Fönix er uppi í 12960 ár (500 ár) og leggur svo hreiður með öðrum 1296(0) árum (500 árum) og sem endar í fullkomnun hrings eða 2592(0) (1000 ár)? Þetta er aðeins getgáta. Það eru fleiri en einn hringur inni í þessu. Líka 1440 (1461).
|
|
thor
Junior Member
Posts: 56
|
Post by thor on Jan 6, 2009 19:04:55 GMT -5
(smá viðbót) Önnur Sólin er andleg sól - sól Krists eða réttlætis. Varðandi tólftu plánetuna sem stundum fylgir getur hún komið fram með neikvæðar birtingar, þ.e. ef hlutirnir tengjast ennþá aðeins neðra birtingarforminu og sem gerist innan ákveðinna hringrása. Thor
|
|