thor
Junior Member
Posts: 56
|
Post by thor on Jul 6, 2009 19:56:33 GMT -5
Heil og sæl öll,
Mjög áhugavert.
Langar í þessu sambandi að velta upp vissri hlið sem ég held ég hafi þó komið inn á áður.
2592000 tommur = 216000 fet = 36 sjómílur 36sjómílurx600=21600 eða ummál jarðar
eða 60 sjómílur = 111.12 km Miða við 0.3048 í fetinu fáum við þá 364566.9291 Aftur á móti ef reiknað er með skekkju ákveðinni skekkju (sjá síðar) og við notum t.d. töluna 0.308666 fáum við 360000
Í framhaldi af þessu að þá ef margföldum 21600 eða ummál jarðar með tólf fáum við auðvitað 259200 sem eru þá að vísu tíu pólveltur en ekki ein, Þ.e. ef miðað er við það kerfi.
Það er að vísu skekkja í þessu sem ég nefndi áðan þannig að 36 sjómílur eru 218740 fet á miða við 0.3048 metra í fetinu. Fetið t.a.m. yrði að vera 0,3086666 metrar (eða þá að sjómílan yrði reiknuð 1828.8 metrar).
Það sem kemur fram við rannsóknir í óhefðbundan geiranum er að eitthvað á sér stað við einnar sjómílu markið og/eða hálfrar sjómílu markið sem þýðir að talan 43200 kemur fram. Og þarna virðist ljóshraðinn ekki gilda lengur.
Ég skal ekki segja, en getur með þessu legið skýring á ferlinu í báðar áttir. Smærri og smærri einingar og síðan stærri og stærri einingar. Þ.e.a.s. sem enda t.a.m. á tölunni 259200 (0) og eru þá einnig með tölugildið 216000. M.ö.o. úr 'stórheimi' í 'smáheim' og síðan öfugt.
Þetta er meira til gamans gert og kannski ekkert nýtt eða merkilegt í þessu.
Kveðja Thor PS Held að allar stærðir séu réttar í þessu
|
|
thor
Junior Member
Posts: 56
|
Post by thor on Jul 6, 2009 20:16:29 GMT -5
Það liggur þó líklega nokkuð beinna við að ætla að skekkjan liggi í fetinu vegna þess að annars gengur talan 21600 sjómílur ekki upp í ummál jarðar eða réttara sagt 40000 km (400032) og verður 39502.08. Veit hins vegar ekki hvort við lendum í svipuðum vandræðum hinu megin eða við 216000 fetin og hvort við fengjum ranga niðurstöðu í metrum á miða við mælingar? Gæti verið? Kv thor
|
|
thor
Junior Member
Posts: 56
|
Post by thor on Jul 6, 2009 20:58:21 GMT -5
Það sem ég á við er hvort um gæti mögulega verið að ræða 218740 ensk fet og þá 66672 metra í staðinn fyrir 216000 fet og 65836.8 metra? Áætla þó fastlega að allar mælingar sýni ávallt 216000 fet. Erfitt er að finna svarið hinum megin eða við ummál jarðar. Og þá þó við tökum pólana sem mælingar virðast miðast við. En ummálið þar er samkvæmt þeim upplýsingum sem ég hef 40008 km. En það ummál gengur upp í 1852 sjómílur. Vil ekki flækja málin og læt þetta duga. Þetta er aðeins til umhugsunar. Thor
|
|
|
Post by Pétur Halldósson on Jul 9, 2009 5:57:54 GMT -5
Sælir félagar
Þetta er stórmerkilegt og takk fyrr Thor. Ég bið hérmeð um leifi til að fá að nota upplýsingar þínar Thor? -þá verð ég í sambandi. Í mörkun heimsmyndar sameinast hugur náttúrunni. Friðþægingin sem í því felst virðist lík friðþægingu huganns sem fæst við helgiathöfn t.a.m. við gerð mandölu -eða hugleiðslu. Ef heimsmyndirnar eru afsprengi hugsanaferlis sem styðst við hlutföll og atgerfi (eða getu mannslíkamans), virðist sem friðþæging hugans felst í að gera tákn úr atferlinu og skilja samhengi þeirra. Fjölmörg tákn sem lesa má úr heimsmyndum um allan heim eru háð hlutföllum þeirra. M.a. þessvegna fæðist Jesú á dymmasta tíma árhrings sem ljós heimsins.
Í útreikningunum sem Thor sýnir okkur, glittir í glímu lífeðlisfræðilegra forma annarsvegar og viðleitni hugans að skilja það sem fyrir augu ber, hinsvegar. Mælieiningar mannsins voru byggðar á hlutföllum mannslíkamans því mannshugurinn virðist í stöðugum samræðum við veröldina, oftast, án þess að við höfum hugmynd um það. Petur
|
|
thor
Junior Member
Posts: 56
|
Post by thor on Jul 9, 2009 7:27:12 GMT -5
Takk fyrir þetta Pétur, Þér er heimilt að nota allt sem ég kem með, þ.e. ef eitthvað af þessu er í raun frá mér:) Finnst þetta merkilegt. Það kemur að vísu fram skekkja en hún virkar í báðar áttir og getur átt sínar skýringar. Ég vil meina að maðurinn, sem er 'miðjan', hafi verið að tengja sig við göngu eða bylguvíddir bæði smáheims og stórheims. Við erum eilíflega tengd sköpunarverkinu hvort sem um er að ræða smærri þætti eða stærri og það er samhljómur í öllu. Einhverra hluta vegna er nútímamaðurinn dottinn mikið úr tengslum við þennan veruleika. Þ.e.a.s. við erum, eins og þú bendir á, ekki alls kostar meðvituð um þetta en erum samt órjúfanlegur hluti og órjúfanlega tengd veröldinni sem við lifum og hrærumst í. Þetta vissu fornmenn. Þeir stóðu okkur framar að þessu leitinu. Thor
|
|
|
Post by Pétur Halldósson on Jul 11, 2009 16:32:52 GMT -5
|
|
thor
Junior Member
Posts: 56
|
Post by thor on Jul 12, 2009 6:44:02 GMT -5
Sæll Pétur Frábært að heyra þetta. Eitt sem mér hefur verið hugsað til varðandi bæði tölurnar 256 (259.2) og 216 er samspil þeirra og einnig að önnur tekur meira til feminine og hin meira til masculine. Þær birtast alltaf hvor með annarri eða hvor inn í annarri. Í 256 birtist að lokum teningur 216 eða 432 andi. Mér dettur aftur í hug í þessu sambandi ummál jarðar (við miðbaug og um póla) sem við höfum rætt um sem um það bil 21600 sjómílur og þar sem hver gráða er þá í því tilfelli 60 sjómílur eða 60 mínútur (111.12km). Ef við tökum frá skekkju eru 60 sjómílur að mínu mati 360000 fet en ekki 364567 fet. Í 360 gráðum höfum við þá 129600000 fet. En margfaldað með tveimur fáum við töluna 259200000. Ef við förum aftur inn í 60 sjómílur að þá höfum við þar 4320000 tommur, og þá í heilum hring 1555200000. Margfaldað með tveimur fáum við 3110400000. En ef miðað er við 360 daga ár í stað 365.2425 (365.2422) að þá höfum við 31104000 sekúndur. 31104000/12 = 2592000. Á miða við töluna 216 verður afurð 31104000 aftur á móti 14.4 eða 144. Það sem er einnig merkilegt er að þversumman af öllum þessum tölum skilar tölunni 9. Kannski ekkert nýtt í þessu? Ég tengi the Goddess við töluna 256 eða 25920 (259200) og sem tengingur fullkomnast í eins og áður sagði. Talan 25920 tengist sál og um leið Goddess og sem tengir saman anda og efni. Einnig kemur fram talan 259200 eða 21600x12 = 259200 (í stað 25920). Jörð er í raun tengd við töluna 256 en birtir um leið tening sem er sprottinn af andlegum þáttum handan miðju. Til að byrja með er sú birting aðeins 216 en verður 432 er fullkominni tengingu hefur verið náð í gegnum miðju. Það sem mig langar einnig að nálgast í þessu sambandi er að naut tengist pleiades. En pleiades táknar uppskeru og er tengt við the Goddess ásamt venus. Naut tengist egyptalandi eins og komið hefur fram. Merki nauts er 4320 ár aftur í tímann. Í sumu tilfellum er talað um "the bulls eye". Einnig er sagt að þegar um verður að ræða "eitt auga" fyllist líkaminn ljósi. Mér dettur t.d. í hug í þessu sambandi sögnin um Óðinn þegar hann fórnar öðru auganu til að geta drukkið úr mímisbrunni og öðlast þannig visku eða vísdóm. Eru þarna einhver tengsl? Ég skal ekki segja. Datt þetta aðeins í hug og ákvað að láta það fylgja með. Kannski engin tengsl? Thor
|
|
|
Post by Pétur Halldósson on Jul 26, 2009 9:33:24 GMT -5
Sæll Thor, takk fyrir þetta. Það birtist ferlega skemmtileg mynd í tölum þínum. Ég velti fyrir mér; getur verið að mismunandi stærðir fets; grískt, enskt ofl.? sé tilkomin vegna óreglulegrar lögunar plánetunnar (hún gliðnar um miðjuna) -og hugmyndir stærða fets sem mælieiningar verða til á mismunandi stöðum á plánetunni? Thor, sérðu einhvern skyldleika við það? Kær kveðja Pétur
|
|
|
Post by Pétur Halldósson on Jul 26, 2009 9:54:24 GMT -5
Thor þetta er ferlega spennandi. Fyirrgefðu ég er að reyna að glöggva mig á þessum frá bæra pósti þínum um ummálið ofl.
Getur þú farið nánar í hvernig teningurinn 256 er tengdur jörð -og andlegum þáttum handan við miðju?
Hvernig eru tölurnar 259.2 og 256 tengdar?
Frá hvaða skekkju ertu að meina í ummáli jarðar sem 21600 sjómílur, mínútur?
Innilegar þakkir Pétur
|
|
thor
Junior Member
Posts: 56
|
Post by thor on Jul 26, 2009 20:19:57 GMT -5
Takk kærlega fyrir þetta Pétur, 256 táknar móður jörð eða feminine/goddess og þar sem teningur 216 þróast eða vex í tenglsum við það. En eins og við vitum koma fram tólf 2160 ára tímabil í 25920 árum eða einni pól- og/eða möndulveltu. Ef við skiptum 259.2 árum niður í 81 tímabil fáum við 3.2. Í 256 árum, sem er hreinn C tónn, eru aftur á móti 80 slík tímabil. Þetta hefur þó með að gera töluna 324 sem er E tónn og þar sem eru 80 slík tímabil í 25920 árum. Þetta grundvallast þannig allt á tónum eða 216, 256, 324 (256 og 259.2 eru báðar C tónn með ákveðinni skekkju og þá í tengslum við töluna 259,2). Í 216000 fetum eru 35.55 sjómílur. Aftur á móti ættu að mínu mati að vera 36 sjómílur í 21600 fetum. Þarna er skekkjan að mínu áliti. En 21600/36=600. Ef við litum á jörð (256/259.2) sem vöxt fyrir töluna 216(00) og sem kristallast í ummáli jarðar verður það 2592(00) eins og áður hefur komið fram. En talan 216 verður 432 er kerfið nær tengslum við andlegan veruleika handan miðju. Eða 216x2=432. Sem sagt fullkomnun "tenings". Follkomnun andlegrar göngu eða þróunar. Er að vinna að hlutum í tengslum við mismunandi fet. Kær kveðja Þorsteinn
|
|
thor
Junior Member
Posts: 56
|
Post by thor on Jul 26, 2009 21:12:16 GMT -5
Hugmynd mín er þannig sú að ef forna fetið væri t.a.m. 0.3086666667 metrar í stað 0.3048 að þá yrðu 216000 fetin sama sem 66672 metrar og sem yrðu þannig nákvæmlega 36 sjómílur ef miðað er við 1852 metra í einni slíkri mílu. Mismunurinn eða skekkjan er þannig 0.45 sjómílur eða 833.4 metrar í þeim mælingum sem mældar hafa verið sem ég geri ráð fyrir að sé óhugsandi. Átta mig þannig ekki alveg á í hverju skekkjan liggur þar sem ég geri jú fastlega ráð fyrir að allir útreikningar eða mælingar fái 216000 venjuleg fet eða slíkar einingar sem eru 0.3048 metrar svo að við erum þá aðeins að ræða um 35.549 sjómílur en ekki 36. Tel ekki að skekkjan geti legið í 1852 þar sem þessi tala þarf að ganga upp í ummál jarðar eins og við höfum rætt og sem skilar þá tölunni 21600. Tek líka fram að jörð eða 256 inniheldur þannig tening eða töluna 216 og sem gengur þannig í stærri hringrás. En 256 táknar þó í raun meira feminine eða hringrás á meðan 216 táknar birtingu tenings. Sem sagt, að þó að talan 21600 birtist í hring eða t.a.m. ummáli jarðar er jörðin samt sem áður að koma fram í birtingu eða vexti tenings í hinni stærri hringrás. Er kannski orðið dálítið langsótt? Ég skal ekki segja? Kv Þorsteinn PS Gerði villu áðan þar sem ég sló inn 21600 í stað 216000.
|
|
thor
Junior Member
Posts: 56
|
Post by thor on Jul 27, 2009 9:05:09 GMT -5
(númer 3) Ræðandi aðeins meira um 21600, og að ásamt rafsegulbylgjum séu einnig þyngdar'segul'bylgjur eins og sumar kenningar gera ráð fyrir, að þá hefur komið fram við sérstakar tilraunir að það myndast tíðni þar sem punktar myndast á tveggja sekúndna fresti eða 1800 punktar á klukkustund eins og segir. Þetta þýðir 43200 tíðnisveiflur eða punkta á sólarhring og sem tekur þannig til ummáls jarðar. Þarna kom einnig í ljós að vegalengdir skipti ekki máli. Þessar tíðnisveiflur fóru á milli sólar og jarðar á augnabliki en ekki á rúmum átta mínútum eins og hefðbundið ljós. En þessar þyngdarsviðsbylgjur eru byggðar á langsbylgjum eða langsbylgjumunstri. Eru sem sagt ekki þverbylgjur. Í stuttu máli má segja að ef tekið er ummál jarðar sem er þá 21600 sjómílur að við innkomu sviðsins handan miðju eða virkni hinnar innri tíðni verður útkoman 43200. Annars erum við aðeins að tala um efnisveruleika eða jarðneskt svið. Er hringurinn er fullnaður verður orkan einnig inn í jöfnunni. Mig langaði til að bæta aðeins við að þegar stærð jarðar er tekin og síðan tommur eða fet að þá er eins og ekki séu ósvipuð hlutföll á milli stærðar jarðar og tommu annars vegar og síðan tommu og frumeindar eða atóms hins vegar. Þarf að skoða það betur þó. Kv Thor
|
|
|
Post by Petur on Aug 2, 2012 8:02:05 GMT -5
Sæll Thor
Ertu þarna enn??
Gott væri að heyra frá þér
Petur@po.is
|
|
|
Post by EllSignee on Sept 20, 2019 19:40:54 GMT -5
Cialis Mas Alcohol Tadalafil Cialis Y Alcohol <a href=http://sildenaf75.com>viagra</a> Cialis Diarrhee Buy Levitra 20 Mg Online
|
|
|
Post by KelOscisk on Oct 18, 2019 19:00:10 GMT -5
Kamagra Besancon 100mg Buy Xenical Slimming Pills Stendra 50mg No Physician Approval In Internet <a href=http://sildenafbuy.com>buy viagra online</a> Rezept Viagra Torte Rezeptfrei Viagra Preis Buying Amoxicillin Online
|
|