|
Post by Pétur Halldósson on Jan 27, 2009 9:13:50 GMT -5
Sælir félagar ég hef ekki komist á Miðjuna í rúma viku vegna bilunar. Það er gaman er að sjá póst frá Einari Gunnari hér. Sum hlutföll þeirra talna sem þú nefnir eru til meðferðar í bók minni; Stærð veraldar, sem kom út á vefnum 2005 og Salka gaf út á prenti 2007. Þar reyndi ég að leiða líkum að því að allt sköpunarverkið sé einskonar "tónverk" sem á sér eigindir sem birtast í hlutföllum og töktum, smáum sem stórum. Og að hin fornu trúarbrögð, jarðartrúin, sem okkur þykir tilhlíðlegt að kalla hindurvitni og vitleysu, byggist á athöfnum endurfæðingar alls þessa. Heimsmyndirnar sem markaðar voru í land við "helgun lands" voru markaðar samkvæmt þessum hlutföllum, því hlutföllin eru einnig byggð inn í mannfólkið og takturinn felst m.a. í lengd dags og nætur. Við Íslendingar þurfum að segja þessa frétt því menningarsvæði og höfuðborgir flestra þjóða heims eru byggðar á afmörkuðum landsvæðum þessarar tegundar og eru flestar höfuðborgir heimsins því skipulagðar samkvæmt æva fornum heimsmyndum sem Einar heitinn Pálsson fræðimaður uppgötvaði í launmáli Njálu og voru síðast í veraldarsögunni markaðar í land hér uppá Íslandi. Petur
|
|
|
Post by Einar on Jan 27, 2009 12:43:50 GMT -5
Sæll Pétur
Ég er alveg sammála orðum þínum enn væntanlega við ramman reip að draga að koma svona viðhorfum á framfæri.
Góð kveðja Einar
|
|
thor
Junior Member
Posts: 56
|
Post by thor on Jan 31, 2009 9:46:54 GMT -5
Það er rétt að það er engu líkara en allt sé tónverk. Við getum kallað það tíðni eða hljóm eins og t.a.m. í formi hjartsláttar eða eins konar innöndunar og útöndunar. Það sem er kannski erfiðara að sjá í þessu samhengi eru stóru sveiflurnar eða hringrásirnar og tengja þær síðan við þær litlu. En þessir púlsar virðast tengjast beint. Eða eins og þú nefndir Pétur um endurfæðingar alls þessa. Ef við rýnum í kortin er engu líkara en fram komi mismunandi tímabil eða tímaskeið á jörðinni þar sem lífshættir og/eða viðmiðanir eru annars konar og t.a.m njög ólíkir því sem nú er og eru þá háðir þessum sveiflum. Tökum í þessu tilfelli sem dæmi að þau tímabil eða hringrásir sem við erum að tala um spanni jafnvel þúsundir ára og þar sem við getum sem dæmi flokkað þær undir 'vetrartíð' og 'sumartíð' eða útöndun og innöndun. Þarna er þá um að ræða einhverjar sveiflur í náttúrinni sem okkur er aðeins óljóslega kunnugt um. Við höfum í raun ekki það mikla yfirsýn eftir allt þó við eygjum mun á menningarheimum og aðstæðum á jörðinni. Menningarskeið sem lifa sumartíð hafa viðmiðanir sem lúta að mínu mati mikið meira að helgum mælingum og/eða mikilvægi þeirra eða í það minnsta þar sem slíkar þjóðir eða menningarheimar sem slík skeið lifa leitast við að viðhalda sumarástandi er sumartíð er að fjara út og/eða vetrartíð að ganga í garð. Ég tel að þetta getir verið ástæðurnar fyrir staðsetnigu og mælingum hér og þar. Þarna er líka einnig mikið meiri vitneskja um mikilvægið. Einnig er verið að áætla og benda á hvenær sumartíð rennur aftur í garð. Það er kannski einn tilgangurinn með þessu. Að mínu mati er sumartíð að renna í garð núna. Staðreyndin er hins vegar sú að við virðumst hafa verið að ganga í gegnum fremur harða vetrartíð og sem er kali yuga. Það er dimmasta skeiðið. Ef við tökum slíkt tímbil sem 5184 ár og yfirfærum slít yfir í 432000 minni sveiflur eru 2160000 slíkar sveiflur í einum pólveltuhring eða 25920 árum og þá að sjálfsögðu 4320000 í tveimur pólveltuhringjum. Ég hef síðan reynt að færa þetta niður á 259.2 daga og síðan sveiflur eins og innöndun og útöndun eða hjartslátt og/eða starfsemi fruma í líkamanum. Ég held að þetta tengist allt saman þó fara þurfi mun betur í gegnum slíkt að sjálfsögðu. Við erum bara að byrja að klóra í yfiborðið að mínu mati. Viðkomandi stóru hringrásunum veit ég að sjálfsögðu ekki hvað veldur þeim eða breyttum aðstæðum en það gæti mögulega haft með að gera afstöðu sólkerfis og vetrarbrautar eða sveiflum innan þess sviðs sem veldur slíkum tíðarsveiflum. Kveðja Thor
|
|
|
Post by Pétur Halldósson on Feb 4, 2009 6:39:27 GMT -5
Sælir félagar Það er líkt og að tölvísin sem fléttuð er inn í elstu texta sé hluti þessa náttúrulega takts. "Tónverkið" blasir við líkt og hugsuðir fornaldar hafi "dottið" inn í taktin stundum. Í hól við Steinkross á Rangárvöllum kristallast hugmyndirnar; stærð jarðar, líf og dauði, myrkur og birta. Teningurinn sem nefndur var Cubus Perfectus í Landnámu Hauks Erlendssonar gefur engin grið. Í upphafi varð mælingin til í huga manns sem þurfti að átta sig í víðsjárverðum heimi líkt og sá sem þurfi að stíga ölduna á yfirborði jarðkúlu sem snýst í hringferlinu ógurlega. Þegar ungur mannshugurinn skynjaði veröldina var hann í sömu sporum og fyrsti maðurinn í miðju hennar. Hinn fyrsti maður, frumeind í miðjum hringnum, 36+1. Talan 37 er einnig sexhyrningur tölunnar 4. Talan 4 er (grund)völlurinn. Þegar Kristur kom til skjalanna sameinuðust allar vættir í kufli hans, mannkyn hafði þokast að þessari niðurstöðu. Eftir ástríðufulla leit í þúsundir ára að visku var því fæddur frelsari, "spegilmynd". Viðmið og hlutföll sem áður bjuggu í hugtökum umhvefisins fóru hægt og bítandi að lúta valdi mannsins. Teningur miðjunnar, 6 6 6, varð tákn Krists -átthyningurinn 8 8 8, hlutfallið 3 varð 4. Í samhengi sköpunar mynduðu tölugildi elstu stafa hebresku frumformin ferning og hring þannig: “Í upphafi skapaði guð himinn og jörð”. (Í upphafi: 913, skapaði: 203, Guð: 86,+ 401, himin: 395, og: 407, jörð: 296, samtals 2701 = 37 x (spegilmynd)73). Heimurinn sem guð skapaði var ferningur –hið mælda land, síðan mótaði hann tening (Sexhyrning) upp af hinum ferhyrnda fleti. Upphafsorð Genesis færa okkur formálalaust inn að miðju kerfisins sem Einar Pálsson uppgötvaði á Rangárvöllum. Þau lýsa ferningi miðju heimsmyndar sem mæld var 7300 5 feta skrefum. Teningurinn sprettur af miðjunni eins og poppkorn af heitri pönnu eða eins og “Í upphafi skapaði guð himinn og jörð”, 37 x 7300. Tala sexhyrnings margfölduð með þvermáli fernings miðju er teningur miðju –spegluð með sjálfri sér. í miðju er því tákn hexagons sem var hugmynd veraldar í réttum hlutföllum. (Sumir segja; "tja, langt er seilst") – Ja tölur eru formum það sem nótur eru tónlist, –svo er nú það. Pétur
|
|
thor
Junior Member
Posts: 56
|
Post by thor on Feb 5, 2009 15:35:59 GMT -5
Ræðandi um töluna 36+1 að þá er ferningur 6x6=36 og teningur þá 6x6x6=216. Ég tók til að 5184 ár innihéldi 7200 einingar og sem eru þá 259.2 daga langar. Hins vegar eru einingarnar 432000 (2x216000/teningur) og sem eru þá 60x7200. En slíkar einingar eru þá 4.32 dagar. En það sem kemur einnig fram er að 36x7200 er 259200 (eða 25920, sem er einn precession cycle). Líklega ekkert nýtt sem kemur fram í þessu. Ég játa það. Engu að síður sýnir þetta að hringrásirnar og sköpunartölurnar falla saman í eina mynd eða eina heild. Svo það sem við sjáum allt í kringum okkur eru sköpunartölurnar eða tónverkið en ekki bara útreikningar í skilaboðum eða landmælingum fornmanna. Þeir voru að styðjast við eða vissu um þessar hringrásir eða hrynjanda og sem við erum fyrst að átta okkur á núna að einhverju marki. Það er hins vegar töluvert í land ennþá til að þetta skiljist enn betur og/eða hvað fornþjóðir voru í raun að reyna að segja okkur eða skilja eftir til leiðbeiningar. Thor
|
|
thor
Junior Member
Posts: 56
|
Post by thor on Feb 6, 2009 9:38:59 GMT -5
Það má með þessu segja að við séum mitt inn í byggingu Cubus Perfectus og þá án þess þá að gera okkur alltaf fulla grein fyrir því. Hringrásirnar falla að þessu og koma sem tónverk eða útöndun-innöndun og sem fellur að lokum að okkar eigin útöndun-innöndum og hjartslætti. Thor
|
|
|
Post by Pétur Halldósson on Feb 7, 2009 7:41:07 GMT -5
Sælir félagar Ef maður er staddur í miðjum teningnum þá er maður á góðum stað! Þegar ég rannsakaði forn stærðarhlutföll hnaut ég oft um samspil hlutfallanna; lífhvolf sólar -stærð jarðar og stærð manns. Það síðastnefnda varðar form sem finnst skjalfest í lögum Englands konungs um rétta stærð vés konungs sem var heilagt.
Allt frá því að sögur hófust hefur táknmál trúarbragða í flestum löndum veraldar byggst á sömu grunnhugmyndum. Konungur var milliliður manna og guða og varð táknmynd konungs önnur en venjulegs manns. Á svipaðan hátt og faraó varð tákngervingur Maet urðu konungar í evrópskum konungdæmum rétt mælieining. Til er fornt handrit frá dögum Aðalsteins Englandskonungs (vinur og frændi Skallagríms að mig minnir), sem uppi var um það leyti sem Ísland byggðist og ríkti á árunum 924 - 940, um lög Englandskonungs. Þar segir að heilagt vé Englandskonungs talið frá miðju skuli vera; 3 mílur, 3 furlongs, 9 ekrur, 9 fet, 9 lófa, 9 bygg korn. Í fetum er þessi mælieining: 18249,3/4 fet, eða 18250 fet. Sá fjöldi feta er þar augljóslega einingin "radius". Sá radius er þá þvermálið 36500 fet. Hvernig mælingamenn Aðalsteins komust að þessari niðurstöðu er sérlega fallegt. Hlutfallið, sem náði rúma 5km leið (x2) var svo áríðandi að ekki mátti skeika byggkorni! Þetta fer fram meðal vina og frænda okkar á Englandi þegar Ísland byggðist norrænum mönnum. Það merkilega við hlutfallið 36500 fet, er að það er 6 mínútur af ummáli jarðar. 6 mínútur af ummáli jarðar er það hlutfall sem maður sér frá sér á þessari stærð af kúlulaga jörð. Þar afmarkast sjóndeildahringur venjulegs manns, miðað við sléttmælingu, t.d. á sjó. Þetta hlutfall er því þekkt í aðferðafræði björgunarsveita um heim allan, t.d. við leit að mönnum á sjó. Við mælingu heimsmynda, sem ég tel með elstu athöfnum mannkyns, komu til skjalanna hin náttúrulegi "taktur", stærðarhlutföll himinntungla, snúningur þeirra um möndul sinn og ferli þeirra á brautum sínum -ásamt atgerfi manns, þe. hve langt komst heilbrigður maður á hálfum -og heilum snúningi jarðar. Og hve langt sá hann frá sér á sléttlendi.
Það er einnig merkilegt við þennan blessaða tening miðju að hann er ekki bara 36500 fet pr. hlið, hann var líka 7300 5 feta skref pr.hlið. Hann var 36 mínútur að flatarmáli og hann var teningurinn 216 (6 x 6 x 6). Hann afmarkaði sjóndeildahring manns. Og hlutfall hans var notað sem tímamæling þinghalds á Ísislandi og er það hlutfall nefnt í þeim tilgangi í lögum Grágás. Þessi blessaði teningur, sem finnst sem mæld miðja allra heimsmyndanna, blasir við sjónum í öllum heimsmyndum sem ég rannsaka og má sjá 6 þeirra í bók minni Stærð veraldar. Pétur
|
|
thor
Junior Member
Posts: 56
|
Post by thor on Feb 7, 2009 10:45:31 GMT -5
Einmitt! Það má segja að við séum í 'miðju' tenings. Mælingar fornmanna einskorðuðust af þessu þar sem þeir leituðust við að halda veröld sinni í takt við sköpunargverkið. Það skilaði gæfu og sumartíð. Mér dettur enn og aftur í hug t.d. talan 432000 og sem er að mínu áliti 5184ár og þá miða við einingar sem eru 4.32dagar. Helmingur þessa lengri einingar sem er 2592 ár er þá með gildi tölunnar 216(000). Ef við miðum við 259.2 daga sem er gildi Mayanna verða sextíu 4.32 daga tímabil þar. Einnig verða sex hundruð 12 eininga tímabil sé miða við tölugildið 7200 en 432 miða við 5184 ára gildið. Við erum í þessu tilfelli ávallt að vinna með töluna 216 eða 432. Veltur á hvort við tökum hálfan hring eða heilan. Ein pólvelta er þó 25920 ár að sjálfsögðu. Það sem einnig liggur þá inn í þessu er talan 60 eða 600, eða 6 mínútur ef við tölum um ummál jarðar sem skitpist þá í 3600 slíkar einingar. Í slíkum útreikningum sem við erum að ræða um hér koma einnig fram annað hvort talan 7200 eða 7300. Þetta lítur þá akkúrat að skekkjunni sem miðar við annað hvort 360 daga ár eða 365 (2425) ár. Í þessum skrifum hér er kannski villandi að slá einnig fram venjubundum árum í þessu sambandi? Má slíkt vera. Kannksi er þetta einnig svolítið ruglingslegt sem ég setti fram hér? Var að fara í vinnuna svo ég hafði ekki nægan tíma. Það sem ég er að leitast við er að yfirfæra þetta alveg yfir í öndun eða rythma. En ein einingin er 4.32 dagar. Við getum síðan farið niður í sólarhring eða klukkustundir, mínútur og sekúndur. Thor
|
|
|
Post by einargunnar on Feb 8, 2009 16:23:35 GMT -5
Sælir félagar Ég ætla nú bara að gefa ykkur linkinn að nýjustu ritgerð minni. Hún er stutt og skorinorð. Kynningarbréf að neðan læt ég fylgja með svo hægt að sjá um hvað ritgerð er. Góð kveðja Einar I have cancelled my previously announced plans of a book about Ohthere’s voyages, which was scheduled for publishing in 2008 or 2009. My most recent article (National Historiographies and the Viking Age: A Re-examination) is divided into three chapters which are named: Ohthere’s Sciringes heal(h); The first victims in the westward expansion of the Vikings; Ingólfr the Viking: the Swedish connection. In the first chapter, I heavily criticize a well-known theory that is a central theory in Norwegian historiography. In the second chapter, I pose a pioneering theory about who were the first victims in the westward expansion of the Vikings. In the third chapter, I discuss Ingólfr the Viking, the account in Libellus Islandorum about the first settlers of Iceland, and other interesting issues. In my view, an exceptionally exciting article. Published in Aust-Agder-Arv 2008 www.aaks.no/FullStory.aspx?m=81&amid=5882Best regards Einar Gunnar Birgisson
|
|
|
Post by Pétur Halldósson on Feb 9, 2009 18:43:16 GMT -5
Sæll Einar ég get ekki opnað ritgerð þína á þessu svæði (?). Kv. Petur
|
|
|
Post by Pétur Halldósson on Feb 14, 2009 16:25:42 GMT -5
Sælir félagar Heimsmynd Rangárvalla hef ég nú fundið í London. Eins og við var að búast var hún njörvuð niður á víðáttumiklu óslendi Thames. Þingbundin konungsstjórn varð til í Englandi á 13. öld. Stjórnskipulagsbreitingin hafði þróast aldirnar á undan vegna vonlausra herleiðangra konungs í Evrópu sem lénsherrar hans þurftu að borga. Þá kom til kasta heimsmyndarfræða sem var grundvöllur konungsríkis. Magna Carta var gerður og undirritaður af Englands konungi á Coppers Hill í Runnimede þjóðgarði Englendinga á 13 öld. Coopers Hill er í merki Steingeitar á ævafornu sólúri Englendinga í landi Rúnamjöðs (Runnimede). þaðan voru Thames-vellir markaðir og mældir af frumbyggjum sléttunnar alveg eins og landnemar gerðu á Rangár-völlum á Íslandi árhundruðum síðar. Coppers Hill er upphafshvoll heimsmyndarinnar líkt og Bergþóshvoll er upphafshvoll heimsmyndar Íslendinga. Þar bar því að undirrita Mikla sáttmála um afsal valds konungs. Má því segja að Runnimede við Heathrow sé einskonar Þingvellir Englendinga. Heimsmynd Englendinga lítur þannig út samkvæmt athugunum mínum: Coppers Hill- Abbes Roding(Stong) er sama mál og Bergþórshvoll - Stöng á Íslandi, 216000 fet. Swanscombe - Berkhamsted er sama mál og Goðasteinn - Skálholt, 216000 fet. Þessar meginlínur heimsmyndar forn-Englendinga hverfast um miðjuna Coppetts Wood sem er sama hugmynd og Steinkross á Thames-völlum. Frá Steinkrossi Lundúna, Coppetts Wood, eru 36500 fet suður að Helgafelli Lundúna; Marble Arch. Þegar þannig er mælt eru 18250 fet í austur að Þríhyningi Lundúna; Tower hill. Og 18250 fet í vestur að Hofi Lundúna, Acton.
Þegar Rómverjar numu England á fyrstu öld f.Kr. festu þeir sína eigin heimsmynd á flatlendið að hætti Rómar. Sú heimsmynd miðaðist ekki við sólargang líkt og Keltar gerðu, heldur stjörnumerki; Steingeit í sv., Naut í nv., Krabba í na., og sporðdreka í sa. Upphafshvoll Rómveja var því Sunbury, "Skálholt" þeirra" var Luton, "Stöng" þeirra var wood -og "Goðasteinn" þeirra var Swanley.
Svo virðist sem að á langri ævi sólúrs Kelta á þessum stað hafi mörk verið færð til því upphafshvoll kefisins virðist einnig hafa verið við Windsor kastala á einhvejum tíma. Þetta þarf að rannsaka nánar. Alltum þetta verður í væntanlegri bók minni um leindardóma London og sögu fólks á Thamesbökkum. Petur
|
|
thor
Junior Member
Posts: 56
|
Post by thor on Feb 16, 2009 4:30:54 GMT -5
Finnst þetta ávallt merkilegra og merkilegra. Athyglisverðara og athyglisverðara hversu þessi hugmyndafræði virðist útbreidd og með má segja nákvæmlega sama bakgrunn. En í merkingunni táknar ferningur eða teningur, þ.e. tengingur upphafinn, og þá talan 432(000) (216000), hinn andlega mann. Í sama samhengi má segja að maðurinn heyi göngu sína eða fullkomnist í táknmynd hrings og sem getur þá innhaldið töluna 256(000) (259) eða 360(000). Að vísu kemur talan 216 fyrir í hring jarðar þar sem jörðin táknar í grunninn efnisheiminn (þ.e. 'jörð'). Allt hefur þetta sín gildi og sýnist vera hugsað út frá því. Tel að talan 256 (259) sé einnig sýnileg hér með svipuðum hætti og hún kemur t.a.m. fram í pól- eða möndulveltu jarðar og innheldur um leið 'sjálfkrafa' töluna 216. Stórmerkilegt. Thor PS Ég náði að opnað skjalið hans Einars.
|
|
|
Post by Pétur Halldósson on Feb 16, 2009 9:07:53 GMT -5
Sælir félagar Ég sá að ég gleymdi að skrifa hvaða "wood" ég meinti í samhenginu "Stöng" Lundúna, það er Hattersfield Forest við Stanstead. Stöng Englendinga fornaldar er því á milli tveggja stærstu alþjóðlegu flugvalla heimsborgarinnar; Stanstead og Heathrow. Og kæmi það Grím Geitskó ekki á óvart í dag.
(Ég verð að reyna betur að opna ritgerð Einars á þessu svæði) Kveðja Petur
|
|
|
Post by Pétur Halldósson on Feb 16, 2009 9:42:35 GMT -5
-Já það er nefnilega þannig, þetta verður forvitnilegra með hverjum deginum. Thor, hver er lengd hliðar á ferningi sem er innan hrings sem hefur 216000 feta þvermál (64123 m), miðað við að horn hans snerta hringinn? Kær hveðja og takk Petur
|
|
thor
Junior Member
Posts: 56
|
Post by thor on Feb 16, 2009 12:19:04 GMT -5
Pétur, mér sýnist það vera 152735.06 fet eða 46553.648 metrar. Thor
|
|