|
Post by Pétur Halldósson on Dec 18, 2008 11:08:56 GMT -5
Komið þið sæl Heimsmyndin sem Einar Pálsson uppgötvaði á Rangárvöllum á sér tákn hástöðu sólar 216000 fet norð-austur frá Upphafshvolnum, Bergþórshvoli. Ef heimsmyndin sem Einar uppgötvaði er borin saman við þær heimsmyndir sem ég fann í löndunum í kring um okkur, er sá staður sem nefndur er Stöng á Íslandi, nefndur Rodings við London, -Arhus í Danmörku, Ermenonville við París, -Sutri við Róm, -Marathon við Aþenu og Tanis í Egyptalandi. Það er tilgáta mín að Ermenonville gæti hafa verið (H)ermenonville í fornöld ? Herm er Stöng á Grísku og fellur f*gurlega að frönsku heimsmyndinni (Sjá bls. 37 í bókinni Stærð veraldar)
Ég velti fyrir mér hvort einhver þekki merkingu eða orðsifjar orðanna; Arhus (danska), Ermenonville (franska), Sutri (ítalska) og Tanis (egypska)? Pétur
|
|
|
Post by Pétur Halldósson on Dec 19, 2008 6:57:01 GMT -5
Sælir félagar
Haraldur, ég hef eftir Einari Pálssyni að Ing í orðinu Ingólfur er hugsanlega sama tákn og rúnin Ing í fornu ensku rúnakvæði sem merkti “hinn fyrsta”, ættföður nýrrar þjóðar í nýju landi og tengist endingu margra staðarnafna norðan Thames.
Veist þú meira um "Ing" ( eða "Yng")? Petur
|
|
|
Post by HARALDUR on Dec 19, 2008 12:37:19 GMT -5
Saell Petur
vardandi ING INGI
JU SANNERLEGA RUNIN SEM OG MINNIR A STAF HERMESAR
ROTIN NG NK GN KN SNG
FYRST OG FREMST TENGT
EGNA LATINA IGNIS ELDUR SANSKRIT AGNI ELDGUDINN
OLFUR ULFUR ALFT ELFUR ALBUS HVITUR
LOGINN HVITI SEM INGOLFUR NOTAR TIL AD HELGA LANDID
SENNIKEGA TAKN HINNS LOGANDI ELDHUGA ANDANS ELDHUGI ILLUGI
SVIPAD OG MACOY FYRIR SKOTA
TENGT ELDJARNSULU BERGRISA SUDURLANDS
KVEDJA HARA
|
|
|
Post by Pétur Halldósson on Dec 19, 2008 18:06:02 GMT -5
Takk fyrir þetta Haraldur Þetta er merkilegt og fellur vel að heimsmyndinn sem virðist umlikja London. Þar er samsvarandi staður og "Stöng" á Rangárvöllum nefndur Roding (Rod-Ing). Staður þessi á sólúri heimsmyndarinnar táknar "mestu birtu" eða "lengstan dag"–"Loginn hvíti". Þar tíðkaðist að reisa Stöng, eða Herm á samsvarandi stað í gríska sólúrinu (Maraþon), sólinni til dýrkunar, mjög sennilega til helgunar landinu á bjartasta degi. Pétur
|
|
thor
Junior Member
Posts: 56
|
Post by thor on Dec 20, 2008 10:34:20 GMT -5
Eins og fleiri hef ég lengi ígrundað þau skilaboð sem okkur hafa verið gefin í gegnum tölvísi. Hvað voru forn’menn’ að reyna að segja okkur, ef eitthvað? Þær niðurstöður sem ég tel mig hafa komist að, hvers virði sem þær eru nú, segja mér að meðal annars sé um að ræða ábendingar um ákveðna hringrás og síðan andlega opnun (SÓL). Þetta er niðurstaða margra annarra. En andleg opnun eða ‘sólarupprás’ á sér stað er ákveðnum áfanga hefur verið náð. Í mínum huga tengist þetta t.a.m. pólveltu jarðar og þar sem við erum þá að ræða um 25.920 ár. Nú er það þannig að pólstjarnan okkar núna (Pólstjarnan) kemst næst því að vera í beinni línu við möndul eða öxul jarðar í kringum 2010 (2012). Eina vísbendinguna í tengslum við þetta tel ég liggja í bænum Stöng (þá var öldin önnur þegar Gaukur bjó á stöng). Þá rís SÓL í austri. Andleg SÓL. Hins vegar ætti gráðuhallinn að vera 23.26gráður (23,44), þ.e. möndulhalli jarðar, en ekki í kringum 26 gráður eins og mér virðist Stöng liggja í hringnum. En það sem vísa er verið til að mínu mati í þessu sambandi er afstaða norðurpóls eða mönduls jarðar gagnvart himintunglum/stjörnum. Í þessu sambandi kemur einnig ganga Venusar inn í myndina. En þegar betur er að gáð liggja brautargöngur Jarðar og Venusar í ferli gullinsniðs eða mjög nálægt því að því er ég best fæ séð. Við getum ígrundað þetta í ljósi þess að Venus er tákn gyðjunnar (the Goddess) og/eða opnun inn í andlegan veruleika og þar sem Pleiades/Sirius eru einnig inn í þeirri mynd (Pýramídinn). Á sumarsólstöðum 2004 gekk Venus fyrir sólu (Venus Transit). Þetta gerist alltaf með reglulegu millibili. En þegar þetta á sér stað gerist þetta tvisvar í röð með átta ára millibili. Í þessu tilfelli var fyrsta brautin 2004 og sú seinni síðan 2012. Báðar í júní eða rétt um sumarsólstöður. Ég vil ekki fara nánar út í þetta eða valda óróa meðal lesenda, en rétt eftir vetrarsólstöður 2004 verður jarðskjálftinn mikli í Indónesíu þ.e. sex mánuðum eftir Venus Transit á sumarsólstöðum. Ég velti því fyrir mér hvort einhver tengls geti verið þarna á milli þar sem t.a.m. hlið/gate inn í Lemúríu liggur í gegnum þetta svæði við Indónesíu samkvæmt fornum sögnum og þar sem Lemúría táknar the Feminine eða the Goddess og þá um leið opnun inn í andlegan veruleika. Við skulum sjá til hvað tíminn segir okkur? Andleg öfl vinna að sjálfsögðu ekki með náttúruhamförum. Hins vegar eru mikil ferli í gangi og sem við vinnum kannski ekki alltaf með. Þar sem ég hef nú lagt þetta fram má vera að ekki virðist í fljótu bragði tengsl á milli tölvísi, pólveltu, og Venusar eða Pleiades, og farið sé aðeins úr einu í annað í því sambandi af minni hálfu? Má jú vera rétt? Hins vegar tel ég engu að síður full tengsl þarna á milli og þar sem við erum að fara inn í andlegt tímabil. Að þessu sögðu er þetta kannski mikið stærra í sniðum en virðist svona í fljótu bragði og þar sem Jörðin og allt sólkerfið ásamt öðru er inn í spilinu. Ég vil ítreka það að ég er aðeins leikmaður á þessu sviði og skortir þekkingu til að geta lagt fram raunverulega tölvísi. Hins vegar, ásamt tölvísi, styðst ég við mitt eigi innsæi. Er hins vegar alls ekki að segja að það sem ég er að benda á sé rétt. Síður en svo. Þetta eru aðeins umræður og þar sem verið er að vekja máls á ákveðnum hliðum. Umræður skapa síðan að fram koma fleiri hliðar, fleiri sjónarmið. En spurningin er hins vegar þessi, hvort það sem forn’menn’ (eða andlegar verur) voru alltaf að benda okkur á sé að koma fram? Við skulum sjá? Tíminn leiðir það í ljós.
|
|
thor
Junior Member
Posts: 56
|
Post by thor on Dec 21, 2008 8:53:06 GMT -5
Það sem vert er kannski að nefna í þessu samhengi viðkomandi t.a.m. göngu himintungla, Stöng, og þríhyrningnum 3-4-5, er að ásamt því að við erum að ganga inn í Vatnsberatímabil í 2160 ára hringnum og út úr Fiskamerki erum við einnig að ganga inn í Vatnsberatímabil í stærri hringnum og þá út úr Steingeitartímabili en ekki Fiskamerki. Steingeitin táknar kristöllun í efninu (jötuna) og upp rís sonur sólar eða Andleg Sól. Þ.e. þegar ákveðnum áfanga er náð. Að mínu mati er þetta ástæðan fyrir að í hringnum, þ.e. hringum sem tengist 25920 árum og pólveltu Jarðar, og sem er markaður í þríhyrningnum 3-4-5, er Steingeitarmerki við hornið 3-5, eða 54 gráðu hornið, sem síðan er táknað með Berþórshvoli og Njálsbrennu (sjá Einar Pálsson). Stöng er þá í beinni línu hinum megin eða á andstæðum pól. Og undir eru Þrídrangar. Teflt er saman anda og efni. Andanum 'lýstur' niður í efnið þar sem opnast orkustöðvar. Eða, “Þá Var Öldin Önnur Þegar Gaukur Bjó á Stöng”. Ég tel þetta líka ástæðuna fyrir því að geitarhöfuðið kemur fram t.d. meðal frímúrara og musterisriddara ásamt öðrum þar sem það er einnig táknrænt fyrir þessa kristöllun og/eða lægri göngu. Líka eru Jól eða Steingeitarmerki og síðan Vatnsberi táknræn skilaboð fyrir þetta eða hvernig það er borið fram í okkar dagtali. Þarna er um að ræða kristöllun í efninu og slitin tengsl við andlegt líf en síðan einnig útgönguleið eða endurkomu andlegs lífs inn í okkar veruleika. Eldurinn táknar andann (Fire=Spirit). Brennan táknar endurlausn eða endurnýjun en ekki endalok og þar sem hliðstæðan í þessu liggur t.d. í sögnum eins og um fuglinn Fönix. Allt rís upp á þriðja degi. Ef við tökum tímabilin í 25920 ára hringnum eru þau fimm og þar sem hvert slíkt tímabil er þá 5184 ár. Fimmta sólin byrjaði á þeim tímapunkti er Mayarnir nefna eða 3174 fyrir Krist (oft tengt við 3114FK) og endar á okkar tímum. Sjötta sólin, eins og það er kallað, byrjar þá nú og tengist þá andlegu lífi eða vakningu. Endurnýjun. Það em mig langar til að nefna í þessu sambandi, að miða við það sem gerðist nálægt Súmötru eða Indónesíu að þá er svæði Forn-Mayana í Mið Ameríku nánast nákvæmlega hinum megin á hnettinum, sem þýðir þá vestur en hitt er austur. Þ.e. frá austri til vesturs). 2004-2012.
|
|
thor
Junior Member
Posts: 56
|
Post by thor on Dec 21, 2008 9:21:00 GMT -5
Það sem ég vil taka fram að Stöng er að sjálfsögðu í beinni línu í gegnum miðju í hringnum en ekki í framhaldi af 3-4-5 þríhyrningnum. Og 1012 þessu tengt táknar endalok okkar tímabils, og 2013 þá nýja byrjun, nýja heimsmynd. En 20 og 13 eru jú tölur Mayana og eru þá táknrænar eða fela í sér skilaboð.
|
|
|
Post by Pétur Halldósson on Dec 21, 2008 9:36:25 GMT -5
Sæll Þorsteinn efni þitt þarf góða fyrir sögn því það er komið út fyrir "Ferðalag Dana. Takk fyrir að veita okkur innsýn í pælingar þínar, þær eru merkilegar. Petur
|
|
thor
Junior Member
Posts: 56
|
Post by thor on Dec 21, 2008 10:27:01 GMT -5
Sæll Pétur Já það er rétt. Áttaði mig á þessu. Vissi ekki alveg hvernig ég átti að nota spjallborðið og notaði 'reply' færsluna. Hefði átt að breyta fyrirsögninni. Fannst sem þetta tengdist allt saman og var einnig að fiska eftir bænum Stöng eða merkingunni þar. Veit ekki hvort 'reply' færslan kemur inn til annarra eða hvort reply skilar sér nema farið sé inn á spjallborðið? Líklega ekki? Kv Þorsteinn
|
|
thor
Junior Member
Posts: 56
|
Post by thor on Dec 21, 2008 10:44:31 GMT -5
Mistökin sem ég gerði var að breyta ekki fyrirsögninni en nota aðeins 'reply' færsluna. Allur fókusinn fór í að hugsa um það sem ég skrifaði. Það sem ég vildi þó bæta við þetta sem á undan er komið er að við fullkomnun hrings fer talan 216000 (6x6x6) í 432000. Eða þar sem andleg sól byrjar að rísa og andlegur veruleiki vaknar til vitundar á ný. Læt þetta duga í bili. Ekki ætlunin að yfirtaka þetta. Samt sem áður mikið sem kemur upp í hugann. Tel að skilaboðin hér og þar um hnöttinn leiði öll að sama marki ef svo má segja. Takk fyrir Þorsteinn
|
|
|
Post by arnire on Dec 21, 2008 14:49:42 GMT -5
Sæll Pétur og aðrir sem teknir eru til máls á þessarri síðu.
Fann loksins tíma til að fikta mig inn.
Umræðan er um ferðalag Dana. Sé ekki út frá hverju hún hefst.
Ynglingasaga er útgangspunktur fyrir skilning á heiðnum sið þeirra þjóða sem mæltu á danska tungu, Norðurlönd og norðurjaðar meginlands Evrópu, Saxland, Vestfal, Niiðurlönd, Normandí og England. Á þessum löndum heita dagar eftir Tý, Óðni, Þór, Frey/ju og hugsanlega Loka.
Óðinn og Njörður komu með sitt fólk, Æsi og Vani frá Svartahafi þar sem áin Tanais fellur út. Tanais er sennilega Don, en gæti verið D(o)nepr, D(o)nestr eða jafnvel Dóná, sem allar falla í þetta sama haf. Ein sennileg skýring á Dan- nöfnum er því þetta upphaf landnámsþjóðanna. Hljóðlíkingin Danir/Vanir er einnig eftirtektarverð.
Rétt er að hafa í huga að Ás- nöfn geta vísað til landlags auk goðvera eða helgistaða. Ás sem ölduhryggur í landslagi er mjög algengt. Osló er hinsvegar gott dæmi um helgan stað Ása, lo er lundur eða rjóður.
Arhus er Árós, sá staður er í Reiðgotalandi (Jótlandi) sem Óðinn lagði undir sig á ferð "Dana" til Svíþjóðar þar sem hann stofnaði ríki og Njörður norrænan sið honum til heiðurs að lífi loknu. Þetta er nálægt upphafi okkar tímatals.
Ynglingar heita eftir Yngva -Frey sem tók ríki eftir föður sinn Njörð og frá þeim er komin ein lengsta konungaröð sem sögur fara af.
Don er skylt gelíska forskeytinu "dun" sem þýðir virki. Ton þýðir tún og/eða túngarður og umhverfis byggð örugglega garður.
Angeln er af sumum talið vera nokkurnveginn Slésvík, það er krikinn austanverður þar sem Jótland skagar norður úr Þýskalandi.
Læt þetta duga og vona að umræðan skaðist ekki af.
Kveðja,
ÁrniR
|
|
thor
Junior Member
Posts: 56
|
Post by thor on Dec 21, 2008 16:57:14 GMT -5
Heil og sæl öll Vona líka að mín mistök hafi ekki skaðað umræðuna? Kveðja Þorsteinn
|
|
|
Post by Pétur Halldósson on Dec 21, 2008 19:03:13 GMT -5
Sælir félagar. Árni, gaman að sjá þig hér. Þetta er umræða sem getur ekki skaðast og allra síst þar sem því er þannig háttað að hún, umræðan, er ekki til. Ef þú ferð á "10 most recent posts" finnur þú á næstefsta bláa borðanum: "page 1 of 2(3-4-) Jump to page (1) -go": þar stekkur þú á eins margar síður og þú kærir þig um og finnur alla pósta sem skrifaðir hafa verið, hingað til, á spjallsíðu sem ég vona að eigi eftir að hefja sig til flugs á Cyberspace. Ég hóf þetta spjall á að vitna í grein á netinu eftir vin okkar Einar Einar Birgisson: www.internet.is/einargb/oht.pdfKær veðja Pétur
|
|
|
Post by einargunnar on Dec 22, 2008 13:22:14 GMT -5
Ég bið afsökunar á seinum viðbrögðum enn email frá Pétri til mín fór óvart í pósthólf sem athuga mjög sjaldan. Ég vil byrja á því að óska Pétri til hamingju með Miðjuna og er hún þarft og gott framtak. Ég mun nú ekki láta mikið á mér bera á listanum enn fylgjast með umræðunni eftir því sem hef tök á. Það koma nú ekki nein viturleg svör frá mér við spurningum þeim sem Pétur lagði fyrir mig þann 15 Dec. Ég vísa bara á þá sem eru meiri spekingar enn ég: groups.yahoo.com/group/Germanic-L/Á Germanic-L eru allir spekingarnir sem gætu betur svarað þessu enn ég. Ég var nokkuð mikið á þessum lista fyrir mörgum árum og kíkji á hann öðru hvoru. Varðandi Dani sérstaklega þá vil ég benda á vef gamls vinar míns hans Troels Brandt enn hann er algjör sérfræðingur um allt sem lítur að þessu. Að minnst kosti held ég svo. Sjá hér: www.geocities.com/troels_brandt/heruls.htmlÞað er skemmtilegur leiðangur að skoða þessa grein því þarna samtvinnast nokkuð kenningar hins fræga Barða Guðmundssonar, Troels og annara. Varðandi nafnið Skíringissalur þá er ekkert fast í hendi og kenning Péturs jafngild og aðrar og kannski betri. Varðandi Ohthere og Sciringes heal þá mun í janúar birtast grein eftir mig í norskri årbok þar sem ég ræði Sciringes heal. Einnig ræði ég þar hvaða þjóðfélagshópur gæti hafa verið fyrstu fórnalömb víkinga og er það nokkuð byltingarkennt kenning enn sú kenning sem best er ef allt er skoðað. Einnig ræði ég hinn ágæta Ingólf sem oft er nefndur Arnarson og lofa ég þar spennandi lesningu. Ritgerðin mun birtast á ensku og bæði prentuð og á vef þeirra. Ég læt ykkur vita með linkinn þegar greinin er komin á vef þeirra. Tilgáta mín um staðsetningu á Sciringes heal vinnur hratt fylgi meðal fræðimanna og gamla kenningin er dauð þó ekki opinberlega. Helstu baráttumenn fyrir gömlu kenningunni trúa henni ekki lengur þannig að vörnin er orðin erfið fyrir þá. Topp fræðimenn erlendis taka undir kenningu mína og þar á meðal sérfræðingar í Old English textum. Hér er grein eftir Kjell-Olav í norsku árbókinni sem mín grein mun birtast í. Hann tekur heilshugar undir hugmyndir mínar þar. Mjög skemmtileg grein sem ræðir ohthere mikið: www.aaks.no/FullStory.aspx?m=81&amid=4079Sjá Skipsfart langs Agderkysten.......... Varðandi Iraland Ohthere’s sem Ísland þá er þetta tilgáta sem passar best við hvernig landalýsingar eru meðhöndlaðar í texta þeim sem vitnar í Ohthere. Aðferðafræðin þar er mjög skýr og samkvæmt henni getur Iraland bara hafa verið Ísland. Það má alltaf koma með kenningar um að mistök hafi verið gerð við skrifun textans enn erfitt er að meta svoleiðis kenningar. Ég skrifaði smá kafla um Ohthere í 2004 bók minni þar sem ég ræði kenninguna með að Iraland hafi verið Ísland. Ég skal setja þennan kafla á Miðjuna strax eftir jól. Þar er sumt dálítið úrelt enda skrifað fyrir um 5 árum síðan. Meginkenningin er samt sterk. Kveðja Einar
|
|
|
Post by Pétur Halldósson on Dec 22, 2008 15:04:09 GMT -5
Sæll Einar Takk fyrir þetta,-gott svar sem hægt er að vinna úr. Kær kveðja Pétur
|
|